Skemmtiferð - 30. apríl 2014
Um daginn skellti Nína sér í skemmtiferð með Sillu, Lísu og Önnu vestur að skoða handverk og geitur. Þær byrjuðu í álafossbúðinni í Mosfellsbæ, síðan fóru þær til Rítu og Páls sem búa í Grenigerði rétt fyrir utan Borgarnes, þau vinna mikið handverk úr hrosshárum og beinum ásamt því sem Ríta er að spinna úr kanínufiðu. Háafell var heimsótt og hittu þær Jóhönnu sem sýndi geiturnar sínar og aðstöðu, síðan var farið að Reykholti og sá sögufræði staður skoðaður. Ferðinni lauk hjá Guðrúnu í Hespu, þar sem hægt er að kaupa úrval af jurtulituðu bandi, alltaf gaman að koma þangað því hún er svo fróð um jurtalitun. Eftir vel heppnaða skemmiferð fengu þær sér að borða á í landnámssetrinu í Borgarnesi, frábær staður og óhætt að mæla með honum.
Folöldin - 21. apríl 2014
Hestfolöldin fjögur hafa nú verið gerð bandvön og þeim sleppt út á mýri, í dag var því tekið næsta holl inn en það eru fjögur merfolöld, eitt hestfolald og ein tveggja vetra hryssa. Stendur til að bandvenja þennann hóp fyrir sauðburð sem hefst uppúr mánaðamótum. Það fer svo að styttast í fyrsta folald sumarsins en Sigurrós mun væntanlega vera fyrst í ár líkt og í fyrra.
Tamningar - 5.apríl 2014
Hrossin okkar sem eru í tamningu hjá Jóa og Theó í Reykjavík hafa gengið vel og fóru Gulli og Nína í bæinn til að taka þau út. Önnur hryssan sem er hjá þeim núna er hún Salka frá Lækjarbotnum en hún er undan Vímu frá Lækjarbotnum og Þyt frá Neðra-Seli. Salka var gerð reiðfær í fyrra og svo tekin á hús í febrúar. Hún verður vonandi sýnd í sumar ásamt fleiri hrossum frá okkur ef ekkert kemur uppá. Myndirnar eru af Sölku og Púka frá Lækjarbotnum.
Rúningur - 28. mars 2014
Rúningi er lokið, Siggi sá um að taka snoðið í tveimur húsum og svo komu bræður hans Markús og Valli og aðstoðuðu við síðasta húsið. Gekk mjög vel og kindurnar í ágætis holdum, við erum svo heppin að veðurspáin lítur vel út næstu daga svo það ætti að fara vel um kindurnar í húsunum.
Í dag tókum við svo nokkur folöld undan mæðrum sínum, 5 folöld frá Jóa og Theó, 4 folöld frá okkur. Það á aðeins að eiga við þau og undirbúa hestfolöldin fyrir geldingu.